Senior fóður og hvenær er hundur gamall?
Ein algengasta spurningin sem við fáum: Hundurinn minn er aðeins orðinn latari, er hann orðinn gamall?
Jú, hundar hægja á sér þegar þeir eldast, en þeir hægja líka á sér þegar þeir eru orðnir fullorðnir, lífsreyndir og búnir með þann pakka að eyða orkunni sinni í vitleysu. Þá eru þeir meira farnir að velja í hvað þeir setja kraftinn sinn.
En hvað telst vera gamall hundur? Hundar eru af mismunandi stærðum og líkamsgerðum og fá ólíkt magn hreyfingar eftir fjölskyldu og hlutverki í lífinu. Því eldast þeir mishratt og það er kannski aðeins einstaklingsbundið hvenær hægt er að segja að hundur sé gamall.
Út frá líffræði eru hundar oftast sagðir komnir á besta aldur 6–8 ára, eða á topp lífsins.
Hundar eldri en ca. 8–12 ára eru oftast flokkaðir sem eldri eða gamlir hundar og flest fóðurmerki bjóða upp á Senior fóður frá 8 ára aldri fyrir stærri hunda, en fyrir léttari og smærri hunda er viðmiðið almennt um 9–10 ára.
Stórir hundar eldast oft hraðar en litlir, léttir hundar. Líkami þeirra er oft undir meira álagi, einkum liðir, og því sést oftar hjá þeim liðagigt og stirðnun, og ef þeir eru einnig í ofþyngd er meira álag á innri líffæri. Hundar sem hafa haft vinnu, s.s. veiðihundar, smalahundar og leitarhundar, greinast oft með álagsslit eftir gömul meiðsli eða áralanga vinnu. Það á við hér eins og í öðru: það eyðist sem af er tekið.
Þá er líka algeng mýta að heimilishundar endist betur en vinnuhundar, en það er ekki alveg sjálfgefið. Vissulega slitna vinnuhundar hraðar, en þeir eru líka oft massaðri og sterkbyggðari en heimilishundar og því betur búnir til að takast á við veikindi eða slittengd vandamál. Mikilvægt er fyrir alla hunda að halda í vöðvamassa, ekki síst á eldri árum. Of lítil notkun er heldur ekki af hinu góða.
Tegundaeinkenni þekkjast líka, það er að segja styrkleika og veikleika er að finna í öllum hundategundum. Heilsufar og erfðir hafa mikið að segja um lífslíkur hunda og lífsgæði á efri árum.
En af því hundar bera ekki ellimerkin utan á sér getur verið gott að notast við þumalputtaregluna hér að ofan og miða við að skipta um fóður milli 8 og 12 ára aldurs og færa hundinn yfir í Senior valkosti. Risastórar tegundir eru oftast færðar aðeins fyrr yfir á Senior fóður, eða upp úr 6 ára aldri, og smærri tegundir í kringum 10 ára.
Fituminna og auðmeltara fóður
Aðalmunurinn á Senior fóðri og venjulegu hundafóðri snýr að breyttri orkuþörf og hægari brennslu, og því er Senior fóður oft bæði prótín- og fituminna.
Eldri hundar hreyfa sig minna og líkaminn hægir á brennslu. Við viljum ekki að þeir fitni, en þeir eiga líka erfiðara með að brjóta matinn niður. Minni fita leggur líka minna álag á brisið. Hér þarf ekki síður að spá í aukabitana: ertu að gefa hundinum mannamat sem er mjög fituríkur, til dæmis ost, pylsur eða slátur?
Senior fóður er iðulega auðmeltanlegra því meltingarkerfið hægir á sér með aldrinum og getur þurft léttari mat að vinna á, og steinefnasamsetningin er önnur til að létta á innri líffærum, t.d. lifur, nýrum og blóðrásarkerfi. Þá þekkist alveg að eldri hundar eigi erfiðara með að halda þvagi og saur.
Liðavandamál, stirðleiki eða hægari hundur
Helsta heilsubreytingin sem fólk tengir við eldri hunda er skertur hreyfanleiki: þeir eru hægari að standa upp, lengur að bregðast við og teygja sig oftar og lengur.
Þessu er mætt í fóðri með samsetningu vítamína og steinefna, s.s. stuðningi við liði með glúkósamíni og kondróitíni til að draga úr stirðleika og liðverkjum, og jafnvel omega-3 fitusýrum sem vitað er að smyrja liðina.
Hvað getur þú gert til að mæta hundi sem er lengur í gang en áður? Hitaðu hann upp áður en þið farið af stað í göngur eða boltaleiki – byrjaðu rólega – og kældu hann svo niður eftir hreyfinguna (hæg, róleg ganga í 5–10 mínútur í stað þess að leggjast strax niður).
Uppfærðu bælið hans þannig að það styðji vel við liðina og íhugaðu að færa það á hlýrri stað. Hundar verða oft viðkvæmir fyrir kulda á efri árum, sérstaklega þeir sem hafa myndað gigt. Ullarkápur eða hlýr fatnaður yfir vetrartímann gæti verið eitthvað sem þú þarft að skoða, jafnvel fyrir kaldar nætur í sumarútilegunum.
Fyrir liðina, svefninn og kuldann
Sjón og heyrn
Sjón og heyrn geta byrjað að daprast og hundar geta jafnvel fengið elliglöp eða farið að sýna skrýtna hegðun.
Algengast er að fólk verði fyrst vart við að nætursjónin fari: hundurinn verður jafnvel ragur við að fara út í myrkri eða er farinn að ganga á hluti og húsgögn þegar dimmt er. Aðrir verða geltnari í slíkum aðstæðum og sýnilega óöruggari um hvaða hreyfingu þeir eru að greina.
Það er mjög erfitt að greina augnsjúkdóma í hundum og þetta er oft vandamál sem eigendur átta sig ekki á fyrr en sjúkdómurinn er langt genginn. Þess vegna er mikilvægt að reyna að fyrirbyggja þá með réttu fóðri eða fæðubót. Amínósýrur eru mikilvægar til að fyrirbyggja augnsjúkdóma og þær má finna náttúrulega, til dæmis í eggjum, brokkolí og avókadó, og A-, C- og E-vítamín, lútín (lutein) og selen styrkja augun. Þá hjálpa góðar fitur, t.d. omega-3 fitusýrur, sem er að finna í laxaolíu, þorskalýsi og hörfræolíu. Vínberjafræskjarni (grapeseed extract) er settur í fóður m.a. fyrir sjóntaugarnar.
Almennt þarf venjulegur hundaeigandi ekkert að spá í þessu – fóðurframleiðendur gera það fyrir ykkur – en gott er að geta lesið á pakkana og skilið upptalin innihaldsefni.
Nákvæmar heyrnarmælingar eins og við þekkjum fyrir okkur er ekki hægt að framkvæma á hundum á Íslandi. En ekki er ólíklegt að þú sjáir heyrn og þar með athygli hundsins dvína eftir því sem hann eldist.
Þá er mögulega hægt að yfirfæra hlýðniþjálfun hundsins í handabendingar í stað orða, og ef hundurinn er talinn alveg heyrnarlaus þarf að passa hann sérstaklega vel í umferðinni.
Vatnsdrykkja
Eitt helsta merki þess að hundur sé veikur er að hann hættir að drekka eða fer að drekka óstjórnlega mikið, allan sólarhringinn. Því ættu allir að vita u.þ.b. hvað hundurinn þeirra þarf að drekka mikið á sólarhring. Eins og með allt er vatnsinntaka einstaklingsbundin.
Gamall hundur sem byrjar allt í einu að drekka mikið vatn og fer jafnvel að vakna á nóttunni til þess ætti að fara til dýralæknis. Aukin vatnsdrykkja og breytt þvaglát eða litur þvags eru helstu einkenni nýrnasjúkdóma.
Lestu nánar um vatnsdrykkju hunda hér →






