Hundur drekkur vatn úr drykkjarflösku

Hvað er eðlilegt að hundur drekki mikið vatn?

Að drekka vatn og fylgjast með vatnsinntöku

Veistu hvað hundurinn þinn drekkur mikið vatn á dag?

Eitt helsta merki þess að hundur sé veikur er að hann hættir að drekka eða fer að drekka óstjórnlega mikið, allan sólarhringinn. Því ættu allir að vita u.þ.b. hvað hundurinn þeirra þarf að drekka mikið á sólarhring. Eins og með allt er vatnsinntaka einstaklingsbundin.

Fólk sem þekkir vatnsinntöku hundsins síns þegar hann er frískur og heilbrigður, og mælir almennt vatnið ofan í hundinn sinn, greinir fyrr breytingar og á meiri möguleika á að greina veikindi eða vanlíðan og grípa snemma inn í.

Almennt er miðað við að hundur þurfi að drekka ca. 55–110 ml á hvert kg á dag. Út frá þessari þumalputtareglu getum við gert viðmið:

Þyngd hunds Vatn á sólarhring
5 kg ca. 270–550 ml
10 kg ca. 0,5–1,1 L
20 kg ca. 1,1–2 L
30 kg ca. 1,5–3,3 L
40 kg ca. 2–4,5 L

Þumalputtareglur er gott að nota sem viðmið, en auðvitað þarf að hafa í huga stærð, virkni og hreyfingu hundsins og hvers kyns fóður hann er að fá. Hundar á þurrfóðri þurfa meira vatn en hundar sem t.d. eru fóðraðir á blautfóðri eða hráfóðri.

Hundur sem byrjar skyndilega að drekka mikið meira en 100 ml á kg á dag (í efri mörkum töflunnar eða hærra) ætti að fara til dýralæknis.

Hunda sem drekka minna en taflan segir mætti reyna að dekstra til að drekka meira (sjá ráð hér að neðan).

Nýrnabilun er einn algengasti sjúkdómurinn í hundum nútímans. Næg vatnsdrykkja er nauðsynleg til þess að nýrun geti starfað eðlilega. Vatnsdrykkja eykur ekki virkni nýrnanna umfram venjulega getu, en ef líkaminn er vel vökvaður ættu nýrun að vera í toppstandi. Nýrun eru síunarkerfi líkamans og rétt magn af vökva tryggir að þau geti sinnt sínu hlutverki.

Nýrnavandamál er afar erfitt að eiga við því þessi líffæri virðast ólseig til vinnu og sýna ekki á sér neinn bilbug þar til þau allt í einu hætta að starfa.

Eitt einkenni er sýnilegt ef nýrun eiga í vanda og það er að liturinn á þvaginu breytist. Ljósgult þvag merkir að allt sé í lagi. Dekkra þvag (dökkgult, ljósappelsínugult, appelsínugult) er skýrt merki um að líkaminn sé í vandræðum með að brjóta eitthvað niður, og ef það er einnig áberandi illa lyktandi er mikilvægt að skoða málið nánar. Brúnt eða blóðlitað þvag er ekki eðlilegt.

Eigendur sem bregðast snemma við lita- og lyktarbreytingum í þvagi hafa getað komið í veg fyrir mikil óþægindi og veikindi hjá dýrum sínum og sparað dýrar rannsóknir og inngrip.

Forvörn er betri en lækning – lærðu hvað er eðlilegt fyrir dýrið þitt að drekka af vatni að meðaltali á sólarhring.

Ef þú hefur tekið eftir breytingum hafðu þá samband við dýralækni sem ráðleggur þér frekar.

Ráð til að ýta undir vatnsdrykkju hjá hundum

  • Ferskt vatn á alltaf að vera til staðar, allan sólarhringinn.
  • Drykkjarílát þurfa að vera hrein, bæði til að koma í veg fyrir sýkingar og af því hundar drekka síður ólystugt vatn.
  • Nobby súpa er kjúklingaseyði sem sniðugt er að gefa hundum og má bæta út í vatn.
  • CHURU fyrir hunda er þykkfljótandi kjúklingasoð sem hægt er að gefa eitt og sér eða blanda við vatn.
  • Nobby Licky er þykkfljótandi andasoð, líka sniðugt að blanda við vatn.
  • Nobby Smoothie er þykkfljótandi kjúklinga eða andasoð með viðbættu grænmeti sem gefur líka trefjar.
  • 1–2 matskeiðar af blautmat út í vatnsskálina (ýmist hrært út í eða látið fljóta).
  • 5 kúlur af þurrmat út í vatnsskálina til að auka áhuga á vatninu.
  • Klaki gefinn sem nammi eða settur í vatnsskálina.

Bleyta upp hvern fóðurskammt

  • Allan blautmat er hægt að blanda og þynna með smá auka vatni.
  • Bleyta upp hluta eða allan þurrmatinn í vatnsbaði smá stund áður en hann er gefinn.
  • 1–2 klakar út í vatnsskál eða einir sér (einnig hægt að frysta allt ofangreint).
  • Leikglaðir hundar væru kannski til í að leika sér með vatnsslöngu eða vatnsbyssu.

Athugið að þrífa vatnsskálar og matarskálar eftir svona ævintýri. Allur matur og fóður getur myndað óæskilega sýkla á skálum ef hann er skilinn eftir lengi.

Lestu líka: Hvað er eðlilegt að köttur drekki mikið vatn?

Aftur á bloggið