Hvað er eðlilegt að köttur drekki mikið vatn?
Að fylgjast með vatnsinntöku katta sinna þurfa allir kattaeigendur að gera
Veistu hvað kisa drekkur mikið vatn á dag?
Eitt helsta merki þess að köttur sé veikur er að hann hættir að drekka eða fer að drekka óstjórnlega mikið, allan sólarhringinn. Því ættu allir að fylgjast með hvort kötturinn þeirra er að drekka, og enn betra er að vita u.þ.b. hvað kötturinn innbyrðir af vökva á sólarhring.
Eins og með allt er vatnsinntaka einstaklingsbundin, en hún er einnig háð því hvernig mat kötturinn borðar. Kettir á þurrfóðri þurfa töluvert meira vatn en kettir sem t.d. eru fóðraðir á blautfóðri eða hráfóðri. Blautfóður getur uppfyllt megnið af vatnsþörf þeirra.
Fólk sem þekkir vatnsinntöku kattarins síns þegar hann er frískur og heilbrigður greinir fyrr breytingar og á meiri möguleika á að greina veikindi eða vanlíðan og grípa snemma inn í.
Kettir eru líka sérstakir að því leyti að þeir drekka helst ekki staðið, gamalt vatn. Því þarf oft að skipta um vatn í skálinni þeirra. Þeir drekka ekki alltaf úr hvaða íláti sem er og því geta eigendur þurft að prófa mismunandi skálar – keramik, plast, stál, bambus – til að vita hvað þeir vilja helst.
Kettir vilja ekki að matar- og vatnsskálarnar séu of nálægt hvor annarri. Kötturinn er með sterkt rándýrseðli og veit að matur sem hefur verið lengi í snertingu við vatn er líklegri til að skemmast, og vatn sem er mengað af mat er líklegra til að verða fúlt. Hafðu því matarskálar og vatnsskálar ekki á sama stað.
Helst vilja kettir rennandi ferskvatn. Það er innbyggt í þá að heilbrigðasta vatnið, sem ólíklegast er að þeir veikist af, sé rennandi ferskvatn. Þess vegna sækja kettir í vaska og krana. Ef þín kisa er þannig ættir þú að skoða vatnsbrunna, skipta um vatn í þeim daglega og skipta um síur samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Vatnstjón er dýrt spaug og kisur sem vilja helst rennandi vatn eru þekktar fyrir að læra að skrúfa sjálfar frá krönum, sem er ekki gott ef enginn er heima. Í flestum tilfellum mæla dýralæknar líka með vatnsbrunnum því þeir auka líkurnar á að kötturinn drekki reglulega og oftar yfir sólarhringinn.
Vatnsbrunnur og skálar
Almennt er miðað við að köttur þurfi að drekka ca. 50–60 ml á hvert kg á dag. Út frá þessari þumalputtareglu getum við gert viðmið:
| Þyngd kattar | Vatn á sólarhring |
|---|---|
| 2 kg | ca. 100–120 ml |
| 4 kg | ca. 200–240 ml |
| 5 kg | ca. 250–300 ml |
| 8 kg | ca. 400–480 ml |
| 10 kg | ca. 500–600 ml |
Við þetta langar mig að bæta: ef kötturinn þinn er 6–10 kg og ekki af skilgreindri risategund er hann líklega í ofþyngd og við því þarf að bregðast.
Kettir hafa lága þorstatilfinningu og geta drukkið í törnum. Þess vegna er erfitt að nota viðmið á sólarhring; mögulega þarf að fylgjast með kettinum í nokkra daga og skoða meðaltalið sem hann drekkur á þeim tíma. Því er aðgangur að fersku vatni mikilvægur og vatnsbrunnar koma sér vel.
Þumalputtareglur er gott að nota sem viðmið, en auðvitað þarf að hafa í huga stærð, virkni og hreyfingu kattarins og hvers kyns fóður hann fær, eins og kom fram hér að ofan.
Kettir á þurrfóðri þurfa meira vatn, því fóðrið inniheldur almennt aðeins um 10% raka. Þeir verða því að drekka allan vökvann sem talinn er upp í töflunni.
Köttur sem fær nær eingöngu blautmat fær mikinn vökva úr fóðrinu, enda er blautfóður almennt 75–80% vatn. Slíkur köttur sést því kannski sjaldan drekka úr skál. En magnið sem hann þarf að borða af fóðri er þess vegna meira en hjá ketti sem borðar þurrmat.
Ketti sem drekka minna en taflan segir mætti reyna að dekstra til að drekka meira (sjá ráð hér að neðan).
Nýrnabilun er algengur sjúkdómur í köttum. Næg vatnsdrykkja er nauðsynleg til þess að nýrun geti starfað eðlilega. Vatnsdrykkja eykur ekki virkni nýrnanna umfram venjulega getu, en ef líkaminn er vel vökvaður ættu nýrun að vera í toppstandi. Nýrun eru síunarkerfi líkamans og rétt magn af vökva tryggir að þau geti sinnt sínu hlutverki.
Nýrnavandamál er afar erfitt að eiga við því þessi líffæri virðast ólseig til vinnu og sýna ekki á sér neinn bilbug þar til þau allt í einu hætta að starfa. Kettir eru líka sérfræðingar í að fela veikindi og óþægindi, og þó að þeim sé orðið illt er það ekki alltaf augljóst.
Hegðunarbreyting er oft það sem eigendur sjá frekar en annað: kötturinn dregur sig í hlé, felur sig jafnvel, snýr frá eigandanum þegar hann liggur, vill ekki láta taka sig upp, eyrnastaðan breytist (leggur eyrun aftur), pírir augun óvenjulega eins og hann geti ekki opnað þau alveg, mjálmar meira og oftar, pissar og/eða kúkar utan kassans eða pissar á mjúka staði. Ef kötturinn þinn sýnir eitt eða fleiri atriði af þessum lista er mögulega ástæða til að hafa áhyggjur og hafa samband við dýralækni.
Eitt einkenni er sýnilegt ef nýrun eiga í vanda og það er að liturinn á þvaginu breytist. Ljósgult þvag merkir að allt sé í lagi. Dekkra þvag (dökkgult, ljósappelsínugult, appelsínugult) er skýrt merki um að líkaminn sé í vandræðum með að brjóta eitthvað niður, og ef það er einnig áberandi illa lyktandi er mikilvægt að skoða málið nánar. Brúnt eða blóðlitað þvag er ekki eðlilegt.
Eigendur sem bregðast snemma við lita- og lyktarbreytingum í þvagi hafa getað komið í veg fyrir mikil óþægindi og veikindi hjá dýrum sínum og sparað dýrar rannsóknir og inngrip. Þetta ætti að vera auðvelt að sjá í kattakassanum ef kisi gerir þarfir sínar inni. Ef kisi pissar ekki, er lengi að pissa, ef lítið kemur eða í dropatali, eða ef óeðlilega langt er á milli, mælum við með að heyra strax í dýralækni.
Forvörn er betri en lækning – lærðu hvað er eðlilegt fyrir dýrið þitt að drekka af vatni að meðaltali á sólarhring og þekktu mynstrið hans í klósettferðunum.
Ráð til að ýta undir vatnsdrykkju hjá köttum
- Ferskt vatn á alltaf að vera til staðar, allan sólarhringinn.
- Drykkjarílát þurfa að vera hrein og skipta þarf oft um vatn.
- LEO Drink er kjötseyði í mismunandi bragðtegundum.
- Nobby súpa er kjúklingaseyði sem sniðugt er að gefa köttum.
- WOOLF Cat Creams er þykkfljótandi soð í mörgum bragðtegundum.
- CHURU er þykkfljótandi kjúklingasoð í mörgum bragðútfærslum.
- Allan blautmat er hægt að blanda og þynna með smá auka vatni.
- Til að auka áhuga á vatninu kveiktu áhugann og leikgleðina: settu litla bolta eða leikföng sem fljóta ofan í grunna vatnsskál og dragðu athygli að vatninu. Vittu til kisa mun reyna að ýta við þeim og leika og þá drekka smá vatn í leiðinni, hún þarf amk að hreinsa á sér loppurnar á eftir.
- 1–2 litlir klakar út í vatnsskál eða einir sér.
- Leikglaðar kisur væru kannski til í að leika sér með vatnsbyssu.
- Hægrennandi vatn í sturtubotni gæti vakið áhuga.
Vörur sem hjálpa kisu að drekka meira
Athugið að þrífa vatnsskálar og matarskálar reglulega. Allur matur og fóður getur myndað óæskilega sýkla á skálum ef hann er skilinn eftir lengi.
Lestu líka: Hvað er eðlilegt að hundur drekki mikið vatn?







