Hvolpur að naga leikfang í grasinu

Ertu búin að fá þér hvolp? Helstu ókostir

Allir elska hvolpa og ekki síst við, en við höfum líka fengið okkur hvolp, litið á hvort annað og sagt: „Erum við að gera rétt? Getum við þetta? Gerðum við mistök að fá okkur hvolp núna?“ Því allir sem hafa fengið sér hvolp stoppa á einhverjum tímapunkti og spyrja þessara spurninga. Já, þetta er svona „brútalí honest“ póstur um nýja hvolpinn þinn!

Það sem gerist á einhverjum tímapunkti er að maður hættir að elska þetta litla krútt og þetta fer allt að verða aðeins erfitt. Þeir bíta meira og fastar en okkur minnti, þeir eru enn óvart að pissa inni fjórum vikum eftir að við fengum þá, verkefnin í vinnunni eru orðin aðeins erfiðari og við erum lengur að koma okkur heim en upphaflega stóð til. Krakkarnir þurfa sinn tíma eftir vinnu og einhvern veginn verður ÚLFATÍMINN (klikkaði tíminn milli ca. 17 og 19 á kvöldin) ennþá erfiðari þegar bæði börnin og hvolpurinn þurfa athygli, elda þarf matinn og allir eru orðnir „hangry“ á sama tíma!

Það er þá sem hvarflar að okkur hvort þetta hafi verið slæm hugmynd að fá þessa viðbót í fjölskylduna.

Hér er smá umhugsunarefni fyrir þá sem eru búnir að fá sér hvolp, og alveg hollt að hlusta á áður en aðrir fá sér hvolp.

Kristín hundaþjálfarinn okkar tók saman þetta myndband hér um árið og það er eitt af klassískum myndböndum hennar sem á ennþá við. Hvolpauppeldi hefur nefnilega ekkert breyst og baslið sem eigendur glíma við er nær alltaf það sama.

Kristín fer yfir hluti eins og: Hvað ber að hafa í huga áður en maður fær sér hvolp? Þú munt elska hvolpinn þinn í ræmur og svo koma tímabil þar sem hann mun fara í taugarnar á þér. Hér eru fjögur atriði sem þú þarft að vita áður en þú færð þér hvolp.

Og mundu bara: við höfum flest öll verið þarna!

Vantar ykkur aðstoð? Kristín heldur hvolpa- og hlýðninámskeið. Sjá námskeið hjá Kristínu → Og ef þig vantar ráð um fóður eða búnað, spurðu okkur.

Lestu líka: Ertu að fá hvolp? Hvað þarf að undirbúa?

Aftur á bloggið