Ertu að fá hvolp? Hvað þarf að undirbúa?
Það er ótrúlega spennandi að fá hvolp – og smá stressandi líka. Hér er listinn sem við förum yfir með fólki áður en hvolpurinn kemur heim. Þú þarft ekki allt fyrsta daginn, en því meira sem er tilbúið, því rólegri verða fyrstu vikurnar.
1. Fóður og skálar
- Notaðu sama fóður og hvolpurinn fékk hjá ræktandanum fyrstu vikurnar. Stressið við að skipta um heimili hefur áhrif á maga hvolpsins og því mælum við ekki með að fara í fóðurskipti ofan í það.
- Þegar og ef þú vilt skipta, gerðu það hægt á 7–10 dögum.
- Hvolpafóður er gefið smáhundum amk til 9 mánaða aldurs en meðalstórar og stórar tegundir færast oft yfir í Junior fóður upp úr 4 mánaða. Allt hvolpafóður á það sameiginlegt að vera litlar kúlur fyrir smáa munna og smáar tennur.
- Veldu fóður og skammtaðu magn eftir stærðinni sem hundurinn verður fullvaxinn.
- Matarskál og vatnsskál. Stál er sterkt, auðvelt að þrífa, safnar síður í sig sýklum. Keramik er fallegt og huggulegt en þarf að skipta út ef kemur brot í glerung. Plast er klassískt og auðvelt að þrífa, slitnar eins og annað og þarf að skipta út reglulega.
2. Svefnstaður og öruggt svæði
- Bæli sem má þvo – það verða slys.
- Búr eða hvolpagrind gefur hvolpinum öruggan stað til að hvílast og þér smá andrými.
- Veldu rólegan stað þar sem fjölskyldan er samt nálægt.
3. Hreinlæti og pissuþjálfun
- Pissumottur fyrir fyrstu vikurnar og nóttina. Pissumottur eru bæði til einnota og margnota og í þremur stærðum. Geta nýst líka í fyrstu bílferðum ef verður slys.
- Farðu út strax eftir svefn, mat og leik – gefðu hvolpinum tíma til að gera stykkin sín og hrósaðu fyrir.
- Kúkapoka þarf nú alla vasa og í bílinn
- Góður hreinsir fyrir slysin.
Pissumottur og hreinsir
4. Ól, taumur og auðkenni
- Hálsól og/eða beisli sem passar – það þarf að stækka með hvolpinum eða kaupa nýtt þegar hann vex upp úr því.
- Venjulegur taumur (ca. 2 m) fyrir gönguferðir og þjálfun.
- Geymdu flexi-tauminn þar til hvolpurinn gengur vel í taumi.
- Langan taum (3-5m) fyrir lausahlaup, leiki og innkallsæfingar.
- Nafnspjald með símanúmeri og athugaðu að örmerkið sé skráð á þig.
- Ljósaól eða einhvers konar ljós, er gott að hafa á hvolpinum á veturna.
Taumur
5. Naga og leika
- Hvolpar eru í tanntöku og verða að naga. Gefðu þeim eitthvað leyfilegt – annars velja þeir sjálfir (skór, snúrur, stólfætur…).
- Nokkur leikföng úr ólíkum efnum nagheld og venjuleg, gefin til skiptis til að viðhalda áhuganum.
- Nagbein til dæmis úr nautshúð, hrein án aukaefna og lausvafin svo litlar tennur ráði við þau.
6. Snyrting
- Mjúkur bursti og milt hvolpasjampó.
- Vendu hvolpinn á að leyfa þér og öðrum að snerta loppur, eyru og munn og skoða tennur frá fyrsta degi.
- Klóaklippur í stærð sem hentar hvolpinum.
7. Heimilið
- Rafmagnssnúrur, skór og smáhlutir upp úr gólfhæð.
- Lokaðu fyrir stiga og svæði sem hvolpurinn á ekki að fara inn á.
- Athugaðu hvort pottaplöntur á heimilinu séu eitraðar fyrir hunda, eða amk. utan seilingar. Pottamoldin vekur oft mikinn áhuga hjá hvolpum.
8. Dýralæknir og fyrstu vikurnar
- Bókaðu tíma hjá dýralækni: bólusetningar, ormahreinsun og skoðun.
- Skoðaðu tryggingu fyrir hvolpinn.
- Byrjaðu félagsmótun strax – nýtt fólk, önnur dýr og aðrir hundar og umhverfisþjálfun við hljóð og staði í rólegum skömmtum. Vandaðu til verka hér gildir gæði umfram magn. Gefðu þér tíma og leyfðu honum að rannsaka og uppifa jákvætt alls staðar til dæmis hrós, klapp, nammi eða leik.
- Hvolpanámskeið borgar sig alltaf.
Kristín heldur hvolpanámskeið. Sjá námskeið hjá Kristínu → Ertu óviss um fóður? Fáðu fóðurráðgjöf hjá okkur.
Lestu líka: Ertu búin að fá þér hvolp? Helstu ókostir















