Grábröndottúr köttur með verki

Er kötturinn verkjaður?

Kötturinn er rándýr þó hann sé heimilisköttur og hefur mörg einkenni villtu forfeðra sinna.

Eitt af því er að fela líkamleg einkenni eins og sársauka. Þess vegna getur verið erfitt að sjá þegar kisi er smá meiddur eða veikur. Það er í eðli hans að fela það því veikburða dýr er jú bráð fyrir önnur sterkbyggðari, þau gætu séð tækifæri til að koma þeim fyrir kattarnef. Þetta hefur gert hann að meistara í að fela sársauka.

Því er mikilvægt að þekkja köttinn sinn og lesa í hegðun hans. Bæði hundarnir okkar og kettir eyða megninu af degi sínum (meðan þeir nenna að vaka) að fylgjast með okkur. Þeir eru miklir atferlis spekúlantar. Við mættum taka þá okkur til fyrirmyndar og gefa okkur aðeins meiri tíma í að fylgjast með þeim og þeirra hegðun.

Vissir þú til dæmis að besta leiðin til að sjá hvort köttur sé slappur er að lesa í hvernig hann ber sig. Skoðaðu höfuðið, eyrnastöðuna, augnsvipinn og stöðu veiðihára.

Svipurinn segir margt

Vísindafólk við Montréal-háskóla í Kanada hefur þróað einfaldan kvarða, Feline Grimace Scale, sem dýralæknar nota til að meta verki hjá köttum út frá svipnum einum. Hann nýtist okkur kattaeigendum líka vel. Þú skoðar fimm atriði í andlitinu og gefur hverju 0, 1 eða 2 stig.

Köttur án verkja: upprétt eyru, opin augu, slakt trýni
0Enginn verkur
Köttur með væga verki: eyru aðeins út, hálfopin augu
1Vægur eða óviss
Köttur með greinilega verki: flöt eyru, pírð augu, höfuð lágt
2Greinilegur verkur
Teikning: kattarandlit án verkja
Teikning: kattarandlit með væga verki
Teikning: kattarandlit með greinilega verki
Atriði 0 stig 1 stig 2 stig
Eyru Upprétt, vísa fram Aðeins í sundur, snúa örlítið út Flöt og snúa út til hliðanna
Augu Opin Hálfopin Pírð, nánast lokuð
Trýni Slakt og kringlótt Örlítið spennt Spennt, sporöskjulaga
Veiðihár Laus og sveigð niður Örlítið sveigð eða bein Bein og vísa fram
Höfuð Ofan við axlalínu Í línu við axlirnar Undir axlalínu eða haka að bringu
Leggðu saman stigin, 0 til 10. 4 stig eða meira benda til þess að kisi sé með verki og þá er rétt að hafa samband við dýralækni.

Til að meta rétt þarf kisi að vera vakandi og í ró, ekki á meðan hann sefur, borðar eða snyrtir sig. Fylgstu með í nokkrar mínútur, ekki bara eitt augnablik. Hafðu líka í huga að hræddur köttur getur sýnt svipaðan svip, til dæmis í bílnum eða á biðstofunni. Gott ráð er að taka mynd eða stutt myndband heima og sýna dýralækninum.

Myndir og teikningar eru gerðar með gervigreind til skýringar. Byggt á Feline Grimace Scale (Evangelista o.fl., Scientific Reports 2019, Université de Montréal).

Hegðunarbreytingar

Hegðunarbreyting er oft það sem eigendur sjá frekar en annað:

  • kötturinn dregur sig í hlé, felur sig jafnvel
  • snýr frá eigandanum þegar hann liggur
  • vill ekki láta taka sig upp
  • vill ekki klapp og knús
  • kryppa á bakið er algeng, liggur í hnipri með fæturnar undir sér
  • eyrnastaðan breytist (leggur eyrun aftur eða niður)
  • pírir augun óvenjulega eins og hann geti ekki opnað þau alveg
  • trýnið spennist og við það leggjast veiðihárin aðeins niður
  • mjálmar meira og oftar
  • pissar og/eða kúkar utan kassans eða pissar á mjúka staði
  • hoppar minna en áður upp á húsgögn
  • stirðari / lengur að teygja sig þegar stendur upp
  • borðar minna eða ekkert
  • kastar upp oftar (öðruvísi en útaf hárboltum)
  • hægðir breytast (linari eða harðari)
  • drekkur minna en áður eða ekkert
  • hættir að snyrta sig

Ef kötturinn þinn sýnir eitt eða fleiri atriði af þessum lista er mögulega ástæða til að hafa áhyggjur og hafa samband við dýralækni.

Svo er það líka stundum að eigandinn fær einhverja tilfinningu að kötturinn sé að haga sér óeðlilega en getur ekki sett orð á hvað það er. Oft er slík tilfinning rétt og ef þér finnst þú vera að sjá breytingar sem gætu verið neikvæðar heyrðu þá í dýralækni eða pantaðu skoðun.

Hvað getur þú gert heima?

  • Fylgstu með vatnsdrykkjunni. Kisi sem drekkur minna en áður getur orðið vökvalítill og það reynir á nýrun. LEO Drink er kjötseyði sem freistar margra kisa sem annars drekka lítið.
  • Freistaðu með góðgæti. Ef kisi borðar minna getur þykkfljótandi nammi eins og WOOLF Wildcat Cream komið matarlystinni af stað. En ef kisi borðar ekkert í sólarhring eða lengur á alltaf að heyra í dýralækni.
  • Kattagras hjálpar mörgum kisum að losa sig við hárbolta. Ef uppköstin eru öðruvísi en venjulega eða koma oftar skaltu samt láta dýralækni skoða kisa.

Eldri kisur

Kettir eru taldir komnir yfir léttasta skeiðið um 10 ára og eftir 12 ára flokkast þeir oftast sem gamlir og þeir sem lifa yfir 15 ár teljast háaldraðir. Mælt er með að heilbrigðir kettir á besta aldri fari árlega í almenna heilsufarsskoðun hjá dýralækni en eftir 10 ára aldurinn gæti verið vert að íhuga að fjölga slíkum skoðunum.

Eldri kisur hafa oft gott af smá viðbót í mataræðið. Nobby Multi Vitamin er vítamínmauk með tauríni sem hentar líka eldri köttum og má gefa beint úr túpunni eða yfir matinn.

Forvörn er betri en lækning – þekktu kisuna þína og hvað er eðlilegt fyrir hana.

Ertu óviss um fóður eða bætiefni fyrir eldri kisu? Fáðu fóðurráðgjöf hjá okkur.

Lestu líka: Hvað er eðlilegt að köttur drekki mikið vatn?

Aftur á bloggið