Farðu í vöruupplýsingar
1 af 5

Trekking line harness CLIP'N - ice blue

Trekking line harness CLIP'N - ice blue

Venjulegt verð 12,590 kr
Venjulegt verð Söluverð 12,590 kr
Útsala VÆNTANLEGT
Translation missing: is.products.product.taxes_included Sendingarkostnaður reiknaður við kaup.
Stærð
Magn
Frí sendingá pöntunum yfir 15.000 kr.
Sent um allt landmeð Dropp eða Póstinum
Búð á SelfossiEyravegi 23

Nú loks frá Non-Stop Dogwear beisli sem þarf ekki að fara yfir höfuð!

Skilvirkt og bólstrað beisli með opnanlegu hálsmáli. Hvort sem um er að ræða daglega göngutúra, fjallaferðir og allt þar á milli, þá veitir beislið þægilegan stuðning við allar hreyfingar hundsins. 

Við tókum það inn í litnum ICE Blue eingöngu en getum sérpantað í litnum "SAND" sem er beige litað beisli.
Einnig til taumur í stíl.

Kemur almennt í stærðum 1-8 - sjá stærðartöflu framleiðanda:

Mál — Trekking Line Harness CLIP'N™

Stærð 1 2 3 4 5 6 7 8
Þyngd 64.1 g 82.4 g 120 g 125.8 g 162.2 g 192 g 208.4 g 232.2 g
Breidd brjóstólar 3.5 cm 3.6 cm 3.7 cm 4.5 cm 4.5 cm 5 cm 5.5 cm 6 cm
Lengd brjóstólar 10 cm 15.5 cm 19 cm 22 cm 27 cm 30 cm 32 cm 36 cm
Hálsop 30 cm 33 cm 36 cm 40 cm 45 cm 52 cm 57 cm 63 cm

 

Trekking line harness CLIP’N™ er ný útfærsla af vinsælusta hversdagsbeisli Non-stop dogwear og hentar sérstaklega vel hundum sem líkar illa við að fá beisli yfir höfuðið.

Beislið byggir á hinni margreyndu hönnun Line harness, sem hefur verið þróuð og betrumbætt í meira en áratug. Létt Y-laga hönnunin heldur axlasvæði, handarkrikum og öndunarvegi hundsins frjálsum og veitir hundinum því gott hreyfifrelsi. Beislið fæst í mörgum stærðum og er með stillanlegum ólum yfir bringu, svo auðvelt er stilla beislið rétt fyrir mismunandi líkamsbyggingu. Mjúk bólstrun á álagssvæðum dregur úr núningi og dempar högg.

CLIP'N™ sylgjan við hálsinn gerir það fljótlegt og þægilegt að setja beislið á og taka það af, án þess að þurfa að draga það yfir höfuð hundsins. Sylgjan liggur ofan á þykkri bólstrun sem kemur í veg fyrir óþægilega þrýstipunkta og er fest með frönskum rennilás sem heldur henni sylgjunni og beislinu vel á sínum stað.

Trekking line harness CLIP’N™ er framleitt úr vönduðum og slitsterkum efnum, meðal annars með Hypalon-styrkingum og Duraflex® sylgjum. Beislið er hannað til að þola mikla notkun og er frábær kostur í göngur, sporavinnu og hversdagsleg ævintýri með hundinum þínum.

Taumurinn festist í sterkan D-hring úr stáli á baki beislisins. Frá stærð 3 er einnig styrkt festing framan á brjóstinu sem hægt er að nota þegar þörf er á aukinni stjórn eða til að draga úr togi.

Öflug 3M™ endurskinsrönd liggur meðfram beislinu og eykur sýnileika hundsins úr öllum áttum þegar birtuskilyrði eru léleg.

Þvottaleiðbeiningar
Festið allar sylgjur fyrir þvott til að verja þær skemmdum. Þvoið við 30°C í vél eða höndum.
Setjið í þvottapoka ef þvegið í þvottavél. 
Setjið ekki í þurrkara.

Sending og afhending

Þú velur afhendingarstað þegar þú gengur frá pöntuninni. Frí sending yfir 15.000 kr. á Dropp-stað, pósthús eða póstbox. Þú getur líka sótt pöntunina frítt í búðina á Eyravegi 23, Selfossi.

Sendingar og skilmálar

Skoða allar upplýsingar