Royal Canin URINARY CARE
Royal Canin URINARY CARE
ÞURRFÓÐUR SÉRSTAKLEGA ÆTLAÐ KÖTTUM SEM EIGA ÞAÐ Á HÆTTU AÐ MYNDA KRISTALLA EÐA STEINA Í ÞVAGI
ÚTÞYNNT ÞVAG
Fóðrið er samsett þannig, er varðar steinefnainnihald, að það hvetur köttinn til að drekka. Aukin vatnsdrykkja gerir það að verkum að þvagið verður betur þynnt út og því eru líkurnar orðnar minni á myndun kristalla eða steina í þvagi en vandamál í þvagleiðarakerfi er vel þekkt hjá köttum, sérstaklega eftir því sem þeir eldast.
Sömuleiðis hefur magn ákveðinna steinefna, sem í of miklu magni geta haft neikvæð áhrif á heilsu þvagleiðarakerfisins, til dæmis fosfórs (P), verið minnkað og aðlagað þannig að það minnkar líkurnar á neikvæðum áhrifum.
JÁKVÆÐAR NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður rannsóknar sem fór fram í rannsóknarmiðstöð Royal Canin í Frakklandi árið 2014 sýndi fram á að kettir sem fengu Urinary Care fóðrið voru 2x líklegri til að vera með þvagið þannig samansett að það stuðlaði ekki að kristalla né steinamyndun þegar þeir voru bornir saman við ketti sem átu ekki Urinary Care fóðrið.
VATNSDRYKKJA SKIPTIR MIKLU MÁLI
Mikilvægt er að hafa hreint vatn alltaf tiltækt fyrir köttinn þinn og er það óháð stærð eða tegund. Kettir eru alþekktir fyrir hvað þeir eru latir við að drekka vatn og því er mikilvægt að hvetja þá sem mest til að drekka vatn.
ÞEGAR HLÝTT ER Í VEÐRI
Munum að hlýtt er lægra hitastig hjá köttum en hjá flestu fólki, og þá er auk þess enn mikilvægara að passa vel upp á vatnsdrykkjuna þeirra.
Bragðgott og höfðar vel til matvöndustu katta.
Fóðrið er fyrst og fremst notað til að koma í veg fyrir myndun kristalla og steina í þvagi. Ef vafi leikur á heilsu kattarins skal ávallt leita til dýralæknis.
NÆRINGARGILDI
Prótein: 33% - Fita: 13% - Trefjar: 5%