Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

RC Dog MINI STARTER

RC Dog MINI STARTER

Venjulegt verð 12,300 kr
Venjulegt verð Söluverð 12,300 kr
Útsala VÆNTANLEGT
Translation missing: is.products.product.taxes_included Sendingarkostnaður reiknaður við kaup.
Stærð
Magn
Frí sendingá pöntunum yfir 15.000 kr.
Sent um allt landmeð Dropp eða Póstinum
Búð á SelfossiEyravegi 23
Ekki viss hvort þetta fóður hentar?Segðu okkur frá dýrinu og við sendum þér ráðleggingu.
Fá ráðgjöf

FÓÐUR FYRIR HVOLPAFULLAR OG MJÓLKANDI TÍKUR AF SMÁHUNDATEGUND OG HVOLPANA ÞEIRRA

FÓÐUR SEM TEKUR VIÐ AF HT42D SMALL DOG FÓÐRINU. 

NÆRINGARINNIHALD

Heildstætt fóður ætlað tíkum og hvolpum frá og með 43. degi meðgöngu, fæðingu, á meðan hvolparnir eru á spena og sem fyrsta fóður hvolpa til 2ja mánaða aldurs. Fóðrið er orkuríkt til að mæta þörfum hjá hvolpafullum tíkum og hjá tíkum með hvolpa á spena enda um að ræða krefjandi tímabil fyrir tíkina.

HEILBRIGÐ BYRJUN

Sérstaklega samansett af næringarþáttum sem eru til staðar í móðurmjólkinni, einkum til að styrkja meltingu hvolpa og byggja upp náttúrulega vörn þeirra (þar á meðal með FOS og MOS góðgerlafæðu).

BRAGÐGOTT OG AUÐVELT AÐ BLEYTA UPP

Bragðgott og auðvelt að bleyta upp til þess að auka lyst hjá tíkinni og til þess að auðvelda breytinguna hjá hvolpunum frá móðurmjólk yfir í fasta fæðu - auðvelt að bleyta upp!

ATH: Ef einungis 1-2 hvolpar eru væntanlegir getur Starterinn verið of orkuríkur fyrir tíkina og valdið óþarfa þyngdaraukningu sem er óæskilegt. Því er, undir þeim kringumstæðum, mælt með að færa tíkina yfir á Puppy á 43. degi meðgöngunnar (einnig er hægt að halda áfram á HT42d) sem er orkuminna fóður en Starter en svo aftur yfir á Starter þegar hvolpar eru fæddir enda mikilvægt að tíkin fái næga orku til að gefa á meðan á krefjandi spenagjöf stendur.

NÆRINGARGILDI

Prótein: 30.0% - Fita: 22.0% - Trefjar: 1.3%.

Sending og afhending

Þú velur afhendingarstað þegar þú gengur frá pöntuninni. Frí sending yfir 15.000 kr. á Dropp-stað, pósthús eða póstbox. Þú getur líka sótt pöntunina frítt í búðina á Eyravegi 23, Selfossi.

Sendingar og skilmálar

Skoða allar upplýsingar