Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

RC Dog FRENCH BULLDOG

RC Dog FRENCH BULLDOG

Venjulegt verð 17,700 kr
Venjulegt verð Söluverð 17,700 kr
Útsala VÆNTANLEGT
Translation missing: is.products.product.taxes_included Sendingarkostnaður reiknaður við kaup.
Magn
Frí sendingá pöntunum yfir 15.000 kr.
Sent um allt landmeð Dropp eða Póstinum
Búð á SelfossiEyravegi 23
Ekki viss hvort þetta fóður hentar?Segðu okkur frá dýrinu og við sendum þér ráðleggingu.
Fá ráðgjöf

Þurrfóður fyrir Franska Bolabíta eldri en 10 mánaða

Vöðvamassi
Aðstoðar við að viðhalda vöðvamassa með aðlöguðu magni próteina. Ennfremur inniheldur fóðrið L- karnitín sem leikur stórt hlutverk í eðlilegri fitubrennslu.

Bætt melting
Stuðlar að bættri meltingu með góðgerlafæðu (FOS). Vinnur gegn of mikilli gerjun í þörmum og dregur þannig úr vindgangi og illa lyktandi hægðum - sem eru frábærar fréttir fyrir eigendur Franskra Bolabíta!

Viðheldur og styrkir húð og feld
Styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar með fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (EPA og DHA) en þær leika lykilhlutverk í öllum frumuhimnum líkamans - húð verður sterkari og feldurinn glansandi fallegur.

Heilbrigðir liðir
Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.

Fóðurkúlurnar
Kúlurnar eru þannig að stærð og lögun að það er auðveldara fyrir hundinn að ná þeim upp en flatnefja tegundir eiga oft í erfiðleikum með að koma fóðurkúlum upp í munninn. Sömuleiðis hvetur stærðin og lögunin Bolabítinn til að tyggja og hafa þannig eðlilega meltingu þannig að það komi ekki of mikið magn fóðurs í magann of hratt - á þann hátt verður uppþemba í maga ólíklegri.

Tannheilsa
Lögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því á tennurnar ákveðna "burstun" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.

Næringargildi
Prótein: 24% - Trefjar: 2.8% - Fita: 14%.

Sending og afhending

Þú velur afhendingarstað þegar þú gengur frá pöntuninni. Frí sending yfir 15.000 kr. á Dropp-stað, pósthús eða póstbox. Þú getur líka sótt pöntunina frítt í búðina á Eyravegi 23, Selfossi.

Sendingar og skilmálar

Skoða allar upplýsingar