Farðu í vöruupplýsingar
1 af 6

RC Cat BabyCat Milk kettlingamjólk 300gr

RC Cat BabyCat Milk kettlingamjólk 300gr

Venjulegt verð 7,150 kr
Venjulegt verð Söluverð 7,150 kr
Útsala VÆNTANLEGT
Translation missing: is.products.product.taxes_included Sendingarkostnaður reiknaður við kaup.
Magn
Frí sendingá pöntunum yfir 15.000 kr.
Sent um allt landmeð Dropp eða Póstinum
Búð á SelfossiEyravegi 23
Ekki viss hvort þetta fóður hentar?Segðu okkur frá dýrinu og við sendum þér ráðleggingu.
Fá ráðgjöf

Royal Canin BabyCat Milk 300gr er þurrmjólk fyrir læðu og kettlinga frá fæðingu með pelasetti og mæliskeið.

Fyrir 0-2 mánaða

Þurrmjólk sem stuðlar að stöðugum uppvexti - næringargildi þurrmjólkurinnar er eins líkt móðurmjólk kettlinga eins og hægt er. Mjólkin er orku- og próteinrík og tekur þannig mið af heildar orkuþörf á þessum viðkvæma tíma.

Auðmeltanleg
Þurrmjólkin er sérstaklega auðmeltanleg með formeltum próteinum (LIP) sem gera það að verkum að líkurnar á hverskonar ofnæmi eru minni en annars væri. Sömuleiðis er laktósamagn svipað og í móðurmjólkinni sem hentar ungum kettlingum einstaklega vel. Mjólkin hentar einnig sérstaklega meltingarvegi kettlinga þar sem hún inniheldur ekki sterkju (ungir kettlingar framleiða ekki nægilegt magn amýlasa til þess að melta/brjóta niður sterkju). Viðbætt góðgerlafæða (FOS) styður við heilbrigða meltingarflóru.

 Aldur í vikum Fjöldi skipta/gjafa á sólarhring magn pr. skipti
0-1 7 2-4 ml
2 6 5-10 ml
3 5 10-15 ml
4 5 10-15 ml
5-8 eftir þörfum  venjið á fasta fæðu

Næringargildi
Prótein: 33% - Fita: 39%.

Sending og afhending

Þú velur afhendingarstað þegar þú gengur frá pöntuninni. Frí sending yfir 15.000 kr. á Dropp-stað, pósthús eða póstbox. Þú getur líka sótt pöntunina frítt í búðina á Eyravegi 23, Selfossi.

Sendingar og skilmálar

Skoða allar upplýsingar