Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

RC Dog MAXI AGEING 8+

RC Dog MAXI AGEING 8+

Venjulegt verð 20,500 kr
Venjulegt verð Söluverð 20,500 kr
Útsala VÆNTANLEGT
Translation missing: is.products.product.taxes_included Sendingarkostnaður reiknaður við kaup.
Stærð
Magn
Frí sendingá pöntunum yfir 15.000 kr.
Sent um allt landmeð Dropp eða Póstinum
Búð á SelfossiEyravegi 23
Ekki viss hvort þetta fóður hentar?Segðu okkur frá dýrinu og við sendum þér ráðleggingu.
Fá ráðgjöf

 

Royal Canin MAXI AGEING 8+
ÞURRFÓÐUR FYRIR STÓRA HUNDA ELDRI EN 8 ÁRA

Stórir eldri/gamlir hundar sem eru á bilinu 26-44 kg.

NÆRINGARGILDI Prótein: 27% - Trefjar: 2.9% - Fita: 17%.

HEILBRIGÐ ÖLDRUN Í fóðrinu er að finna álitlegt magn af andoxunarefnum frá fjölfenólum úr grænu tei en fjölfenólar geta leikið lykil hlutverk í því að öldrunareinkenni komi síðar fram.

STUÐNINGUR VIÐ LIÐI

Í þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (m.a. EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum enda margir hundar í þessari stærð að glíma við liðvandamál á þessum aldri. Sömuleiðis inniheldur fóðrið ríflega tvöfalt meira af glúkósamíni og kondróítini en í Maxi Adult en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum ég geti skipt miklu máli þegar aldurinn færist yfir.

HEILBRIGÐ HÚÐ OG FELDUR Inniheldur ómega-3 og ómega-6 fitusýrur sem styrkja ytri vörn húðarinnar og þannig stuðlar fóðrið að glansandi feldi og heilbrigðri húð.

AUÐMELTANLEGT

Inniheldur auðmeltanleg prótein (LIP) sem léttir á viðkvæmu meltingarkerfi en veikleikar eiga það til að koma fram í meltingarkerfi eldri hunda. Inniheldur einnig ríkulegt magn af trefjum sem styrkja meltingarveginn og stuðla að jafnvægi í þarmaflórunni.

 

Sending og afhending

Þú velur afhendingarstað þegar þú gengur frá pöntuninni. Frí sending yfir 15.000 kr. á Dropp-stað, pósthús eða póstbox. Þú getur líka sótt pöntunina frítt í búðina á Eyravegi 23, Selfossi.

Sendingar og skilmálar

Skoða allar upplýsingar