Farðu í vöruupplýsingar
1 af 10

HAPPY HOODIE Small

HAPPY HOODIE Small

Venjulegt verð 2,410 kr
Venjulegt verð Söluverð 2,410 kr
Útsala VÆNTANLEGT
Translation missing: is.products.product.taxes_included Sendingarkostnaður reiknaður við kaup.
Litur
Magn
Frí sendingá pöntunum yfir 15.000 kr.
Sent um allt landmeð Dropp eða Póstinum
Búð á SelfossiEyravegi 23

HAPPY HOODIE er einskonar kragi, hetta eða "buff" fyrir hunda og ketti. Happy hoodie lætur dýrinu líða eins og verið sé að veita því stuðning og nær því frekar að slaka á í aðstæðum þar sem það er hrætt eða líður illa.

  • Hettan er þykk og dempar hljóð og höggbylgjur.
  • Fæst í 3 stærðum
  • SMALL stærð er fyrir ca. 25-45 cm (ummál höfuðs)
    Hentar flestum smáhundum, toy hundum og köttum.

Viltu hafa hundinn/köttinn slakann og samvinnufúsann?


Allir hundar bregðast misjafnlega við hávaða. Mörg gæludýr eru hrædd við t.d. hljóðið í ryksugu eða verða skelkuð og fá kvíðakast við hljóðið í flugeldum, þrumum eða skothvellum.

Dýr geta einnig verið ósamvinnufús, hrædd eða pirruð við t.d. klóaklippingu, hárburstun, böðun, þurrkun, snertingu á þófum, gesti, bílferðir og heimsókn til dýralæknis.

Happy Hoodie getur haft áhrif á hundinn og minnkað hræðsluna.

Sum dýr eru með krónískar eyrnasýkingar eða mikinn raka í eyrnagöngum. Happy Hoodie er upplagt til að halda eyrunum uppi þannig að eyrnagangurinn haldist opin fyrir loftun.

Við mælum með að venja hundinn rólega við Happie Hoodie. Settu á hann hettuna og gefðu honum að borða og taktu svo aftur af honum. Þegar ekkert er til staðar sem kemur dýrinu úr jafnvægi vilja sumir hundar ekki klæðast Happy Hoodie. Þá getur þeim líka orðið heitt með það til langs tíma inni. Venjið dýrið viðí þægilegum og rólegum aðstæðum. Fylgist með dýrum sem prófa Happie Hoodie í upphafi. Í aðstæðum sem valda kvíða eru flestir hundar mjög móttækilegir fyrir að láta setja á sig og vera með Happie Hoodie. 

Sending og afhending

Þú velur afhendingarstað þegar þú gengur frá pöntuninni. Frí sending yfir 15.000 kr. á Dropp-stað, pósthús eða póstbox. Þú getur líka sótt pöntunina frítt í búðina á Eyravegi 23, Selfossi.

Sendingar og skilmálar

Skoða allar upplýsingar