Vetis
Belcando JUNIOR Lamb & Rice
Belcando JUNIOR Lamb & Rice
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
JUNIOR er fyrir hvolpa af meðalstórum og stórum tegundum frá ca. 4 mánaða aldri og upp að ca. 12 mánaða aldri eða þar til hvolpurinn hefur náð hæð á herðarkamb. (Fram að þeim tíma mælum við með hvolpafóðri Puppy Gravy)
Athugið smáhundar borða oftast hvolpafóður þar til þeir eru fullvaxnir, ekki Junior fóður.
Fóðrið inniheldur lambakjöt og hentar því viðkvæmum hundum vel en hvolpar glíma oft við ýmis meltingavandamál samhliða uppvexti og þroska meltingarfæra.
BELCANDO® Junior Lamb & Rice inniheldur sérvalin hráefni þar sem jafnvægi milli orku og steinefna ríkir og þannig tryggir eðlilegan og jafnan vöxt.
Mikið af mjúku lambakjöti og auðmeltum hrísgrjónum gera BELCANDO® Junior Lamb & Rice einnig sérlega heppilegt fyrir viðkvæma unga hunda. Mikilvæg og næringarrík chiafræ örva meltinguna og gefa mikilvægar fitusýrur.
Orkuhlutföll: Protein: 26% / Fita: 15%
Inniheldur einnig:
ProVital – styrkir ónæmiskerfi hundsins með frumuhlutum (Beta glucane) unnum úr náttúrulegum sveppum.
ProAgil – eykur brjóskmyndun í liðum og hindrar liðaskaða og liðavandamál með gelatín-kollagen hydrolísati.
+ Auka ferskt kjöt
+ Inniheldur mikið af hrísgrjónum – mjög auðmelt kolvetni
+ Chiafræ – styður við meltingarveginn með náttúrulegu jurtaslími og inniheldur 20% omega-3 fitusýrur
Próteingjafi:
-
80% dýraprótein ( 35% lamb; 25% alifugl; 10% fiskur; 10% gelatín)
-
20% prótein úr jurtaríkinu
Framleitt án:
- Hveiti
- Maís
- Soja
- Mjólkurafurða
Þar sem ungir hundar hafa mismunandi þarfir eftir tegundum þá eru skammtastærðir breytilegar um +/- 20 % - sjá ráðlagaðan dagsskammt á poka.
Share
