DB
Kong Puppy - margar stærðir
Kong Puppy - margar stærðir
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Kong Puppy fyrir hvolpa í tanntöku og örum vexti, aðeins mýkra gúmmí svo æstur hvolpurinn gangi ekki of nærri sér og hafi meiri möguleika á að hafa gaman af leikfanginu.
Hægt að nota sem kastleikfang, nagleikfang, sækja og skila leikfang og hugarleikfimi með því að setja í það fyllingar.
Kong er þekkt fyrir endingu og fyrir að veita hundum útrás í leik. Kong er framleitt úr náttúrulegu gúmmí sem hundum finnst gott að naga og leika sér með. Hægt er að setja freistandi nammi, mat eða blautmat / fyllingar inní Kongið til að auka áhuga hundanna á leikfanginu.
Stærðir sem Kong Puppy fæst í:
X-small – fyrir toy- og smáhunda undir 2kg sem fullorðnir
Small – fyrir smáhundahvolpa (hunda að 9kg sem fullorðnir
Medium – hæð 8,5cm fyrir hunda 7>16kg sem fullorðnir
Large – hæð 10cm fyrir hunda frá 13>30kg sem fullorðnir
XLarge – hæð 12,5cm fyrir hunda 27>41kg sem fullorðnir
Breytilegt er hvaða stærðir eru til á lager hverju sinni en einu geturðu treyst Kong mun ekki vanta í verslunina!
Við mælum með Kong Black fyrir súper-nagara (sterkari), Kong Purple fyrir eldri hunda (mýkri) og Kong Puppy fyrir hvolpa í tanntöku og örum vexti.
Share
