Vetis
Allergenius Sjampó fyrir hunda (ofnæmi)
Allergenius Sjampó fyrir hunda (ofnæmi)
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Þetta sérstaka sjampó frá sænska fyrirtækinu Allergenius® dregur úr útskilnaði ofnæmisvalda hjá hundum með því að djúphreinsa feld þeirra og skola burt ofnæmisvalda.
Á sama tíma gefur það húð hundsins raka og heilbrigðan og glansandi feld.
Já þú last rétt - þetta sjampó er hannað fyrir hunda og er ætlað til að draga úr ofnæmisviðbrögðum hjá fólki. Ofnæmi fyrir dýrafeldi stafar af ofnæmisvöldum í hári, munnvatni og þvagi dýranna. Þegar þessi efni dreifast út í loftið eða festast við yfirborð geta þau kallað fram viðbrögð hjá viðkvæmum einstaklingum. Algeng einkenni eru meðal annars rennandi nef, kláði í augum og öndunarerfiðleikar. Allergenius® hjálpar til við að draga úr þessum ofnæmisvöldum og skapa ofnæmisvænna umhverfi.
Regluleg notkun á 1-2 vikna fresti dregur úr magni ofnæmisvalda til langs tíma litið.
Allergenius® feldumhirðuvörur minnka ofnæmisvaka um allt að 90%, bætir heilbrigði húðar og felds og skapar ofnæmisvænna umhverfi fyrir alla.
Vörulínan hefur verið klínískt rannsökuð af Karolinska Institutet í Svíþjóð. Framleiðandi: Addeira Pharmaceuticals AB.
Þetta er einstök feldumhirðulína sem þróuð er til að minnka magn ofnæmisvaka hjá hundum og köttum. Vörunar hafa jákvæð áhrif á húð hunda og katta með því næra hana og gefa henni aukinn raka, á þann hátt hjálpar Allergenius® til við að bæta líf bæði ofnæmisnæmra gæludýraeigenda og dýranna sjálfra.
Með reglulegri notkun Allergenius® má draga verulega úr hættu á ofnæmisviðbrögðum, á sama tíma og húð og feldur dýranna helst heilbrigð.
Allergenius® feldumhirðuvörurnar eru hannaðar til að minnka magn ofnæmisvaka í húðflögum og feld dýrsins. Ofnæmisvakar eru mismunandi prótein sem finnast í öllum hundum í mismiklu magni.
Share
